welcome to chez Dodda;)
17.12.2006 00:31:15 / ernahlin

Einkunnir smeinkunnir...

Tek það fram að ég var ekki upp á mitt besta þessa önnina svo ekki láta ykkur bregða þegar þig sjáið einkunnirnar mínar8|

Fékk 7 í bóklegri og verklegri andlitsmeðferð, förðunina og sölutækni.

8 fékk ég fyrir fótsnyrtingu (munaði mjööög litlu að ég fengi 9), bóklega og verklega líkamsmeðferð (eða nudd), efnafræði snyrtivara og vaxmeðferð.

Er ekki nógu ánægð þó þetta séu ásættanlegar einkunnir, but there´s always room for improvement:D

Takk fyrir mig í bili, read ya later, Ernie Mac ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 15:58:40 / ernahlin

HÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ!!

Halló!!!!!!!

 

Loks e-ð líf í mér J

 

Langaði bara óskaplega að deila með ykkur bréfi sem ég fékk í póstinn um daginn, og Daði, ef þú lest þetta, ekki láta líða yfir þig 8|

 

Ef þetta er eftir útlending, er hún/hann mjög góð/ur í málinu, en ef þetta er eftir íslending þá er ég hrædd um að tungumálið sé að deyja út L

 

“Látum ekki blekkja okkur” er fyrirsögn þessa bréfs:

Mér langar að segja að blokkin okkar er ekki í slæmri stöðu svo að það er ekki nauðsýnlegt til þess að gera viðgerðartillögur. Ef einhverjum langar að skifta um .............

Á svölunum getur hver sem setið flísar.....................málað svalirnar sínar eða borgað sjálfur málara að gera þetta, eina sem ég vill................nauðsýnlegt (aftur) ...............verður blokkin í sama stöðu eins og það er í dag. Ef við skiftum (já, aftur :$)..........mun það kosta okkur tæplega eina til eina og hálfa....... Á  verðina (verðið ef það fór framhjá einhverjum;)) verðum við alltaf að bæta við rúmlega 200% vextir........Lán á 20 ár.......                                       á meðaltali...........minna verðbólga. Við getum kusið...... (mitt uppáhald btw :D ásamt.....).

Með bestu kveðju íbúir Þórufellar (.....þessu). BWAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA is the least I can say:D

 

Mér var eiginlega orðið illt í augunum eftir þennan lestur eins og margir geta ímyndað sér!!

 

Ef einhver veit um góða, ókeypis myndasíðu á netinu má sá hinn sami alveg benda mér á hana, read ya later;)

 

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 11:42:24 / ernahlin

Já, þið segið það!

Veit ekkert hvað er að frétta af mér8|

Fer á Curtis Adams í kvöld með honum Snoja mínum og fleirum úr Bónus.               Annars er planið í dag að hafa fjölskyldudag, er að þvo núna, voða heimilisleg í dag, og svo förum við út eftir hádegi og gerum e-ð skemmtilegt:D

Annars langaði mig soldið að fara og gefa öndunum, en svo er bara búið að hræða mig með þessari fuglaflensu, iss piss segi ég nú bara en tek nú samt ekki áhættuna:$

Við erum búin að láta íbúðina á sölu og það verður opið hús á morgun, og vonandi sýnir einhver áhuga, er allavega voða spennt fyrir að flytja í nýrra húsnæði. Svo gæti maður aðeins bætt húsgögnin ef við næðum að selja;)

Ég bókstaflega hlakka til að fara að vinna á morgun, það er komið páskafrí og ég ætla að vinna í Sólarfilmu alla næstu viku með henni Siggu minni:D

Ég og Guðný fórum til Kötlu um daginn til að skoða litla prinsinn, og mikið rosalega er hann fallegur :!: en ekki kominn með síðu ennþá:cry: svo ég verð bara að hanga heima hjá Kötlu ef ég vil skoða prinsinn meira;)

Hef ekki meira að segja í bili nema það að ég sakna Elínar alveg helling, er ekki búin að hitta hana á msn-inu síðan sautjánhundruð og súrkál:(

Bless í bili, ykkar Ernie Mac;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 23:18:43 / ernahlin

Jæja.......

.....nokkrar fréttir:D

Ég fékk svo skemmtilegt sms í morgun...............Katla sendi mér: "það er fæddur strákur, 51 cm og 15 merkur" og ég var svo glöð þegar ég las það:D:D

Svo er mamma mjöööög ánægð með mig núna, hún kom hingað í nokkra daga fyrir stuttu og spurði mig hvort við Snorri færum ekki á hróa í ár og hún gæti þá passað litlu á meðan en varð voða súr á svip þegar ég sagði að við yrðum bara heima í sumar og spara pening. En amma fer til mömmu í sumar í nokkrar vikur og ég hugsaði með mér: " Af hverju ekki bara að senda litlu með henni svo mamma geti líka fengið að "ammast" með litlu eins og tengdó gerir. Audda var vel tekið í þessa hugmynd og eins mikið og ég elska Rósina mína, þá verður bara sweet að fá bara að hugsa aðeins um sjálfa sig og njóta þess að vera með kallinum og komast út án vandræða þegar manni dettur í hug8)

Svo megið þið ekki gleyma kveðjupartýinu þeirra Ella og Daggar, verður eflaust mikið fjör, allavega hlakka ég til:P

Soldið fyndinn dagur í dag...........ég var bæði lúser og proffi8|                                  Ég fékk lægstu einkunn ( eina lága einkunnin mín svo það sé á hreinu;) ;) sem ég hef fengið á mínum skólaferli............ekki nema 2 í könnun í handsnyrtingu, en það voru reyndar allar með svona einkunnir nema einhverjar tvær sem náðu þessu, þannig að við fáum annað tækifæri og ég er voða ánægð með það:D                                  En, eins og ég nefndi áðan, þá var ég líka smá proffi í tímanum eftir þetta........við fengum tilbaka verkefni og ég var látin lesa upp mitt svar við einni spurningu............. var líka alveg voða montin ;)

Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, Ernie Mac yfir og út8):!:


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 23:15:52 / ernahlin

jæja hér kemur þetta...

Vegna fjölda áskorana ( og þá meina ég bara Elín;)) ætla ég að blogga smá og svara þessum leik:

4 störf sem ég hef unnið um ævina hingað til:

Aktu Taktu (leiðinlegir yfirmenn)                                                                              Hagkaup (þar sem Ernu fannst leiðinlegast að vinna)                                             Gaukur á stöng (geggjað gaman á sínum tíma)                                                     Café Bleu (góður mórall:))

4 myndir sem ég get horft á aftur og aftur:

My best friends wedding                                                                                       Pirates of the carribean                                                                                  Interview with a vampire                                                                                 Legally blonde I

4 staðir sem ég hef búið á

(bara fjórir?):

Akranes                                                                                                      Breiðholt                                                                                                      Miðbærinn                                                                                                 Mosfellsbær

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar (af þeim sem eru í sýningu núna):

LOST                                                                                                                  Will & Grace                                                                                              Supernatural                                                                                                       Less than perfect

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggið:

reyndar skoða ég bloggið ekki á hverjum degi og hvað þá aðrar síður, aðeins ein síða á HVERJUM degi og það er hotmail-ið mitt

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Írland (bara stuð;))                                                                                           Spánn (skemmtilegt í bæði skiptin)                                                                Danmörk (Hrói rúlar.......og mamma líka:))                                                     London baby yeah!!

4 matarkyns sem ég held uppá:

Lambahryggur er það allra besta sem ég fæ                                                             Maarud snakk                                                                                                      fajitas                                                                                                                 kálbögglar

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

reyndar vil ég ekkert frekar en að vera með fjölskyldunni en ég hlakka til að fara með hana til Ástralíu, Bandaríkjanna, Englands og umhverfis landið okkar:D

Bloggarar sem ég klukka:

gee, let með think, ef það er einhver sem á eftir að gera þetta, þá klukka á þá, annars held ég að allir bloggvinirnir séu búnir að þessu!


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 17:42:18 / ernahlin

Gleðilegt ár 2006!!!!!

jæja, kominn tíma til að skrifa e-ð af viti..................eða allavega skrifa e-ð;)

Byrjum á byrjuninni: áramótin voru alveg æðisleg. Byrjuðum á að fara til Siggu og Dóra í þennan líka æðisgengna mat:!::!: Elín og Gabi voru þar líka og Snorri og svo Rósin mín. Við stelpurnar fengum lukkulega tíma fyrir spilakvöld milli jóla og nýárs, annars hefði dæmið bara ekki gengið upp;)

Við vorum á Klambratúni yfir miðnætti, flugeldar allt í kring og voða fallegt. Við tók partý hjá Garðari, sem var bara snilldin eina:!:

Það voru næstum því allir þarna og líka nýtt fólk og það var svo gaman þó svo ég muni ekki beint eftir samtölum við fólk, en ég man allavega hverjir voru þar;)

Vinkona Garðars bauð þarna 2 alveg rosa sætum strákum og annar þeirra minnti mig á Justin Timburfljót en það hafði hann oft heyrt áður:)

Plús að þessi vinkona vildi helst koma heim með okkur Snorra ef þið skiljið hvað ég meina, híhí, bara gaman að því.

Við vinkonurnar og okkar makar lukum jólunum í hangiketi hjá mér, og það tókst bara ágætlega, hefði getað tekist betur hjá mér en það er audda hugurinn sem gildir;) Ég kíkti svo aðeins heim til Unnar í partý þarsíðasta laugardag, aðallega til að kveðja Elínu almennilega og það var fínt að hitta "borðfíflin", spes tónlist var spiluð á köflum sem æsti hópinn og það var audda bara gaman, allir voða smart líka. Svo var hattaþema og ég fékk ekki að komast lengra en í anddyrið án þess að setja upp e-ð höfuðskraut:D Þannig að það var fyndið að fylgjast með fulla fólkinu og spjalla, var sjálf á bíl því ég átti ekki krónu til að djamma og var að vinna daginn eftir.

Skólinn byrjaði á ný í síðustu viku og mér líst alltaf betur og betur á þetta,hlakka til að læra þetta allt saman. Hinar 13 stelpurnar virðast vera mjög fínar og ég hlakka til að kynnast þeim betur:D

Helginni var eytt í Borgarnesi. Ég, Sigga og Svansý fórum án barnanna, gistum í 2 heilar nætur og spiluðum fram á nótt og tróðum okkur út af ýmsum mat og sælgæti á meðan. Það er alltaf jafn gaman að kíkja til fjölskyldu Siggu, Ásrún gat meira að segja verið með okkur allan tímann því hún er ekki að vinna með skólanum að þessu sinni, svo spilaði Maggi afavafa við okkur bæði kvöldin svo við vorum öll saman. Elín var greinilega með okkur í anda því ekki bara ég fann að það vantaði einhvern, pínu eerie:S

Mér var komið skemmtilega á óvart þegar ég kom heim í gærkvöldi. Snorri var búinn að taka voða vel til og hengja upp myndir sem ég gafst upp á að biðja um fyrir svolitlu síðan, þannig að needless to say var ég mjög ánægð. Svo var ég nudduð alveg bak og fyrir og svaf ofsalega vel í nótt:D

Ég kveð að sinni, Ernie Mac8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 16:22:29 / ernahlin

Til hamingju með afmælið!!

Brad Pitt á ammli í dag og er sá "gamli" orðinn 42ja ára, og kynþokkafyllri með hverjum deginum sem líður;)

En ef við snúum okkur að einhverju öðru en þessu stjörnufansi, þá sótti ég einkunnirnar mínar á föstudaginn var, nánar tiltekið á ammlisdegi hennar Ingileifar, til hamingju með það, ef ég hefði vitað (eða munað) af því hefði ég nú örugglega hringt;)

Allavega, þá var ég MJÖÖÖÖÖG ánægð með einkunnirnar to say the least:D Ég endaði með 8 í NÁT 1236 (Eðlis -og efnafræði) og 8 í LOL 2036 (Líffæra -og lífeðlislfræði) en 9 í öllu hinu, LOL 1036, Heilbrigðisfræði 1036 og Næringafræði 1036 þannig að ég gæti ekki verið ánægðari, hélt jafnvel að ég myndi enda með 8 í NÆR og 7 í NÁT en svo fór ekki og ég er komin inní verklega snyrtifræði, VEI, til hamingju ÉG:D

Annars er ekki mikið að frétta, er að vinna eins og brjálæðingur og sem dæmi um það sá ég ekki dóttur mína í 2 heila sólarhringa í síðustu viku:(

Er í fríi þessa helgi og ætla að fara með fjölskyldunni í bæinn að versla og klára allt sem við getum fyrir jól, þreif í morgun og vonandi helst það til jóla því æðri völd vita að ég á ekki eftir að fá tækifæri til þess fyrr en á aðfangadag, og einhvernveginn held ég að við, eftir næstu 5 daga, 12 tíma vinnu  á dag, nennum að þrífa svona rétt fyrir jól, svo verðum við hvort eð er ekki svo mikið heima um jólin, barasta heima hjá tengdó:D

GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR KRÚSÍDÚLLURNAR MÍNAR, HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST!!

Until next time, this has been Ernie Mac;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 15:39:38 / ernahlin

Kall í eina viku?

Veit ekki hvort ég hef e-ð frumlegra að segja en Elin um það að vera karlmaður í eina viku, en lýg því ekki að ég hef hugsað útí það hvernig það væri8)

1. Ég myndi byrja á því að taka í hann til að vita hvernig tilfinningin væri.

2. Vonandi væri ég hott og myndi þá reyna við sæta stelpu og verða heppinn;)

3. Myndi EKKI reyna við vinkonur mínar8|

4. Já, ég myndi líka vilja prufa að efna til slagsmála

5. Ég fengi að vita um hvað strákar tala þegar þeir eru bara tveir saman

6. I would streak, YEAH:D:!:

7. Reyna að totta sjálfan mig. Ég meina, reyna það ekki allir strákar?

8. Taka mynd af sjálfum mér

9. Gera fullt af stunt dóti eins og strákarnir á Eskifirði og Snorri eru svo vel þekktir fyrir:!:

10. Myndi kannski tékka á þessu rassa thingy ef ég væri uppiskroppa með hugmyndir:|

Ég ætla að klukka Svandísi, Höllu sys og mömmu, hehe:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 17:45:30 / ernahlin

Word is the way to go!

Allavega, það sem ég vildi sagt hafa var margt og mikið.

Mér gengur vel í skólanum, reyndar alltaf betur og betur, og gerðist meira að segja svona óþolandi know-it-all týpa um daginn. Ég var í prófi í LOL 103 og ein krossaspurningin var ekki með rétta svarið, ég ætti að vita það, ég lagði þessa töflu VEL á minnið eins og hún hafði sagt okkur að gera. Ég kalla á kennarann og hún sá ekkert athugavert við þessa fjóra möguleika sem hún hafði með spurningunni og sagði mér bara að krossa við það sem ég héldi að væri rétt. Um er að ræða heilataugarnar í númeraröð, þær eru nú bara 12 svo það er nú ekki erfitt að leggja þær á minnið þó ekki sé nema rétt á meðan á prófinu stendur. Ég ætlaði nú ekki að gefast svona auðveldlega upp, númeraði möguleikana en svaraði engu og skilaði svo prófinu eftir að ég hafði svarað öllu öðru og gekk út. Ég fór aftur inn með kennslubókina og sýndi kennaranum að hún hafði gert mistök því ég ætlaði sko ekki að fá mínus fyrir þessa blessuðu spurningu:!: Hún varð frekar snubbótt og greinilega ekki ánægð með mig þennan dag, og mér fannst ég svo vond að ég var byrjuð að skjálfa8| svona eins og maður skelfur þegar maður er með sviðsskrekk fyrir þá sem hafa kynnst því;)

Mér leið líka svona um daginn út af einhverju allt öðru og skal með glöðu geði segja ykkur frá því. Hvort ég er bara að verða verri manneskja eða bara standa fastar á mínu verðið þið að dæma:|

Ég var heima um daginn í sakleysi mínu, Sigurrós var líka heima að hjálpa mér að þvo föt þegar bjallan hringir allt í einu. Eins og ég er vön að gera leit ég í gægjugatið mitt áður en ég tók upp tólið, og þar sá ég tvo menn, svo ég opnaði dyrnar. Þar stóðu þeir og horfðu á mig með þessu sólskyns/sækóbrosi eins og vottum er einum lagið. Já, ég sagði VOTTUM! Þeir byrjuðu á að kynna sig með nafni en komust ekki lengra vegna þess að ég spurði hvort þeir væru vottar. Það kom smá þögn og með fylgdi vandræðalegt bros en að lokum svöruðu þeir játandi. Þá sagðist ég vera ásatrúar og væri nýbúin að skipta um trú (mér var sagt að þeim væri ekki vel við ásatrú og reyndi þetta því....Elín, I´m putting this on you!) Þeir ætluðu nú ekki að láta sér segjast og byrjuðu....."Þegar ég skipti um trú..." en ég ætlaði ekki að gefast upp og lenda aftur í Krummahólaveseni, svo ég stoppaði þá og sagði hreint út að ég hefði ekki áhuga á því sem þeir hefðu að segja. Enn gáfust þeir ekki upp og ætluðu að segja e-ð meira. Ég tók Sigurrósu upp, gekk fram, lokaði á eftir mér, framhjá þeim og sagði: "Afsakið mig en ég þarf að fara niður í þvottahús". Ég veit ekki hverjum datt eiginlega í hug að hleypa þeim inn í húsið:klikk:

Svo eru bara tvö próf núna á miðvikudaginn, búin fyrir hádegi þannig að ég fer snemma í "jólafrí", þarf audda að vinna og byrja á vöktum á café bleu 9. des.

Hvernig væri ef við stelpurnar myndum hittast í kortagerð? Sigga reyndar í prófum til 21.des, jibbí......eða ekki:(:!: en vonandi getum við það, annars föndra ég bara ein, na na na na bú bú (ég heyrði þetta actually í nýrri bíómynd um daginn, skal reyna að muna hvaða mynd það var).

Bara 2 vikur í Elínu, gæti reyndar verið lengur þar sem hún ætlar að hjálpa mömmu sinni í vinnunni því það vilja audda allir vera sætir fyrir jólin;) En þá verð ég bara að fá Gabríel lánaðan og sýna honum bæinn ef kellingin getur það ekki, hehe8)

Framvegis skrifa ég í word (er að því núna sko) og kópera textann svo í bloggið, Erna getur lært af mistökum sko, sama hvað þið haldið! þó það hafi tekið nokkur mistök til að læra það:S.

Ég fór á Elizabethtown með stelpunum síðasta fimmtudag, gaman að venju að vera með þeim, einnig að horfa á sæta stráka eins og Orlando Bloom, en ég mæli ekkert sérstaklega með því að fara á hana í bíó en þetta var fín afþreying, soldið furðuleg mynd en fyndin á köflum.

Ég fór aftur í bíó í gær með Snorra mínum á Harry Potter og hún er rosa flott, ekki svona úrdráttur eins og þriðja myndin var.

Ég ætla nú ekki að fara að óska ykkur gleðilegra jóla strax enda bara 5. des í dag;)

Mamma átti ammli í gær, ég sendi henni kveðju en vildi líka koma því á framfæri hér, TIL HAMINGJU MEÐ GÆRDAGINN MAMMA MÍN!!!!!:D

Ég kveð að sinni, Ernie Mac


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.11.2005 13:30:50 / ernahlin

AAAAAAAAARRRRRRRGGGGGGGGHHHHHHHHHH!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Sko, þetta er ástæðan fyrir því að ég nenni sjaldan að skrifa í þetta helv... djö...fuck....drasl:!::!: Ef það er ekki út af því að ég er geðveikt lengi að skrifa og er inná Mozilla þar sem ég get ekki notað copy og paste dótið, þá er það vegna þess að ég geri e-ð stjúpid eins og rétt áðan og ýti óvart á einhvern takka sem fer á næstu síðu og STROKAR ALLT ÚT:!::!::klikk:

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 10:38:05 / ernahlin

VÁ!!!

Ég veit ekki hvort ég er á einhverju feisi eða hvort ég sé bara að verða gömul8|:!:

Ég tók 5 diska sett af netinu sem heitir "Twist and shout" og það er bara snilldin eina:D Þar eru lög eins og auðvitað twist and shout, nokkur lög með Buddy Holly, t.d. "all my love, all my kisses, you don´t know what you´ve been missing, oh boy" voða fjörugt lag. Svo má ekki gleyma "rock around the clock", "mr. Sandman", "california dreaming" og fleiri. Svona fyrir alla sem fíla twist og swing:haha::!:

Í öðrum fréttum er svosum ekki mikið, allavega ekki mikið af því merkilega. Það er nú samt óneitanlega merkilegt að ég ætla að djamma báða dagana næstu helgi, hef ekki gert það í svona 3 ár eða e-ð. Fyrst er það HALL:klikk:WEEN, hlakka til þess, og svo er Snorri að halda uppá ammlið sitt á laugardaginn, svo þetta verður bara snilldar helgi;)

Því miður get ég ekki orðið að ósk hennar Elínar vinkonu minnar að vera hún á halloween, heldur ætla ég að vera hann Billie Joe Williams, fyrir þá sem vita ekki hver það er, er það söngvari Green day8)

Hef þetta ekki lengra í bili, hagið ykkur nú vel krakkar mínir, Ernie Mac segir það , já já, snjalla Erna, já já:S


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.10.2005 10:59:43 / ernahlin

Allt í lagi...

...komnar 2 vikur síðan ég skrifaði e-ð, Erna ekki nógu dugleg í þessu:$:!:

Er í vetrarfríi núna, heilir 2 dagar sem er reyndar betra en ekkert. Við Sigurrós fórum ekki einu sinni framúr fyrr en 9:308| Algerar svefnpurkur:!:
Nú er hún loks byrjuð að labba........hæ hó jibbí jey:!::!::haha: Ekkert smá ánægð með mína;)

Svo ég svari nokkrum spurningum áður en ég gleymi því: ég er að fara til Ástralíu til að læra en ekki fyrr en eftir heil 3 ár og rétt rúmlega það, en hlakka samt óhemjumikið til:haha: Og Hafrún, hún Regína er ekki að kenna mér, kennarinn minn heitir Rósa og er bara fín, hefði frekar skilið þetta eftir á blogginu þínu, en fann ekki út hvernig ég átti að vista það8|:!: og þú mátt alveg kalla mig nörd því ég og tölvur förum yfirleitt ekki saman:)

Svosum ekki mikið annað að frétta, ég skemmti mér konunglega með krökkunum í Catan um helgina, takk fyrir mig, bæ í bili, Ernie Mac

» 5 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 10:14:57 / ernahlin

Iss piss

Veit ekki hvað ég er að hugsa, held ég í alvöru að íslenski bachelorinn verði interessant?:!:

Ég forvitnaðist í gær, ok, gott og blessað að fyrsti þátturinn var kynning og ekki enn búið að tilkynna hver yrði fyrsti piparsveinninn............en í gær var fyrsti þátturinn af greinilega 4 til að kynna piparsveinana. Hver nennir að hanga yfir þessu? Ég skal segja ykkur það..........Allavega EKKI ÉG:!::!:

En eins og áður hefur komið fram vonaðist ég nú ekki eftir miklu af þessum þáttum, en yfir í aðra sálma.

Ég var ekkert smá ánægð með einkunnina sem ég fékk úr LOL 103 í gær, heil 9, hef aldrei fengið svo hátt á stóru prófi í framhaldsskóla, kannski af því að ég hef meiri metnað núna til að gera vel en ég hafði áður, svo hlakka ég líka alveg morð mikið að fara til Ástralíu og myndi ekki vilja seinka því fyrir einhverja vitleysu8|

En nóg í bili, ég ætla að fara að horfa á kærastann minn, hann Scott í sjonvarpinu þar til ég þarf að fara út í bókakaup. Kveð að sinni, Ernie Mac:haha:


» 58 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 16:47:32 / ernahlin

Miðvikudagur!

Jæja, ég er nýbúin að taka 3 próf og búin að fá útúr 2 þeirra, er barasta ánægð, með 7.7 í næringafræði og 7.4 í náttúrufræði en held ég hafi staðið mig betur í lífeðlisfræði 103, en það kemur í ljós fljótlega:)

Ótrúlegt en satt kom kisan mín í ljós eftir að hafa verið týnd í 3 eða 4 vikur, fór með hana uppí Víðidal í tékk og hún var bara ágæt, fékk vítamín og ormalyf en er ekki veik sem betur fer. Hélt að hún væri barasta farin úr þessu lífi en þökk sé vinalegum nágrönnum að ég fékk hana aftur:haha:

Hef ekki beint mikið meira að segja svo ég segi bara bæ í bili, elskið nágrannann, en aðallega ykkur sjálf. Ernie Mac has left the computer:!:


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.09.2005 21:18:48 / ernahlin

klukka segirðu?

1. Ég er yfir mig ástfangin af Scott Bakula akkúrat núna, enda búin að dowloada öllum 5 seríunum af Quantum Leap :)

2. Ég er loks búin að eignast hommavininn sem mig langaði alltaf í:)

3. Ég skrópaði í fyrsta sinn í dag, á þessari önn þ.e.a.s., og það í 2 tímum, skamm Erna!!!!!!

4.Ég var loks voða dugleg að þrífa íbúðina mína í dag, þið hefðuð ekki viljað koma í heimsókn á síðustu vikum!!!!

5.Horfði á íslenska bachelor þáttinn áðan, hann suckaði:)

Vonandi gaf þetta einhverja innsýn, ég bætti við nokkrum bröndurum ef einhver vill skoða þá. Man einhver eftir Erie Indiana þáttunum?

Bæ í bili, Ernie Mac

Hef engan til að klukka, sorry:$


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4